Móðir mín var á spítala allan tímann

Imane Khelif með ólympíugullið sitt.
Imane Khelif með ólympíugullið sitt. AFP/Mohd Rasfan

Ima­ne Khelif sem vann til gull­verðlauna í hne­fa­leik­um á Ólymp­íu­leik­un­um í Par­ís ræddi þá gagn­rýni sem hún fékk á meðan á leik­un­um stóð við Canal+ í Frakklandi.

Khelif fékk ekki að keppa á heims­meist­ara­mót­inu þar sem hún féll á kynja­hæfn­is­prófi. Hún mæld­ist með of mikið magn af karlhorm­ón­un­um testó­sterón í lík­am­an­um á heims­meist­ara­mót­inu, en niður­stöðurn­ar urðu aðeins ljós­ar klukku­stund­um áður en Khelif átti að keppa til úr­slita á mót­inu.

Mörg hne­fa­leika­sam­bönd eru starf­andi og IBC-sam­bandið sem hélt heims­meist­ara­mótið er ekki viður­kennt af Alþjóðaólymp­íu­nefnd­inni. Af þeim sök­um var Khelif send í annað próf fyr­ir Ólymp­íu­leik­ana í Par­ís og það stóðst hún.

Ekki voru á all­ir sátt­ir við að Khelif fengi að keppa á leik­un­um og var hún harðlega gagn­rýnd af þekktu fólki á borð við Elon Musk, Don­ald Trump og J.K. Rowl­ing.

„Musk var einni sá fyrsti sem gagn­rýndi mig. Hann byrjaði þessa her­ferð gegn mér. Hann hat­ar mig þótt hann þekki mig ekki neitt. Ég skil ekki hvers vegna hann réðst gegn mér.

Hann var vond­ur við mig, fjöl­skyld­una mína og móður. Mamma var á spít­ala alla daga á þess­um tíma og ég skil ekki hvernig fólk get­ur hagað sér svona,“ sagði hún.

Eft­ir leik­ana kærði Khelif, sem er frá Als­ír, marga fyr­ir netníð. Á meðal þeirra voru áður­nefnd Musk og Rowl­ing.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert