„Það er enginn að selja neitt“

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

„Kaup­end­ur okk­ar eru bara í sömu stöðu og við. Þeir sitja bara á þeim birgðum sem þeir eiga og eru ekki að selja neitt. Það er eng­inn að selja neitt, það eru bara öll viðskipti orðin stopp. Ég myndi ekki gera ráð fyr­ir að það ger­ist mikið fyrr en eft­ir rúss­nesku jól­in og ára­mót­in.“

Þetta seg­ir Teit­ur Gylfa­son, sölu­stjóri upp­sjáv­ar­fisks hjá Ice­land Sea­food, í sam­tali við mbl.is en í kjöl­far mik­ils geng­is­falls rúss­nesku rúblunn­ar gagn­vart Banda­ríkja­dal hafa hér­lend­ir fiskút­flyj­end­ur haldið að sé hönd­um vegna út­flutn­ings til Rúss­lands. Íslensku fyr­ir­tæk­in fá alla­jafna greitt í doll­ur­um en geng­is­fall rúblunn­ar má einkum rekja til mik­ill­ar lækk­un­ar heims­markaðsverðs á olíu. Teit­ur seg­ist þannig ekki reikna með að mikið ger­ist í þess­um mál­um þar til í kring­um 12. janú­ar þegar Rúss­land fari í gang aft­ur.

„Það eina sem við get­um gert er að vera í þéttu sam­bandi við okk­ar viðskipta­vini og fylgst með hvað verður. En við höf­um þekkt þessi fyr­ir­tæki sem við erum að selja til og fólkið sem þar vinn­ur í mörg ár og þessi viðskipti hafa verið byggð upp yfir lang­an tíma þannig að það er tölu­vert traust þarna á milli. Viðskipt­in byggja mjög mikið á sterk­um per­sónu­leg­um sam­bönd­um,“ seg­ir Teit­ur. Spurður um loðnu­vertíðina sem fram und­an er seg­ist hann ekki telja að þjóðarbúið tapi á henni enda verð á mjöli og lýsi í hæstu hæðum.

Þetta sé hins veg­ar ekki í fyrsta skipti sem ís­lensk­ir fiskút­flytj­end­ur þurfi að tak­ast á við hliðstæðar aðstæður vegna tíma­bund­inna verri markaðsaðstæðna í Aust­ur-Evr­ópu að sögn Teits. Síðan hafi markaðsaðstæður batnað á nýj­an leik. Til að mynda í kjöl­far banka­hruns­ins og eins í lok síðustu ald­ar. „Bæði við og viðskipta­vin­ir okk­ar höf­um þurft að vinna okk­ur út úr svona skafli áður þannig að málið er bara að vera sval­ur núna og vinna vel úr stöðunni.“

„Við höf­um auðvitað áhyggj­ur af þess­um aðstæðum í Rússlandi og vilj­um halda þess­um markaði til lengri tíma. En eins og staðan er í dag þarf bara að leggja kalt mat á hlut­ina, vera í góðu sam­bandi við viðskipta­vini og gæta hags­muna okk­ar eins vel og við get­um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK