Fyrirvörum aflétt í raforkusölusamningi við PCC BakkiSilicon

Höfuðstöðvar Landsvirkjunar við Háaleitisbraut í Reykjavík.
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar við Háaleitisbraut í Reykjavík. mbl.is/Ómar

Landsvirkjun tilkynnti í dag að öllum fyrirvörum hafi verið aflétt í raforkusölusamningi sem fyrirtækið og PCC BakkiSilicon hf. (PCC) undirrituðu í mars síðastliðnum. Samningurinn nær til sölu rafmagns til kísilmálmverksmiðju, sem PCC mun reisa á Bakka við Húsavík.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun útvega rafmagn fyrir kísilmálmverksmiðju PCC, sem áætlað er að hefji starfsemi á árinu 2017 og framleiði í fyrsta áfanga allt að 36 þúsund tonn af kísilmálmi og noti 58 MW af afli.

Öll skilyrði raforkusölusamningsins hafa nú verið uppfyllt en fyrirvarar sneru meðal annars að því að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) myndi ekki gera athugasemdir við nýja samninginn, tilheyrandi leyfisveitingum, raforkuflutningssamningum og fjármögnun. PCC hefur nú tilkynnt að fjármögnun verkefnisins sé tryggð, ábyrgðir gagnvart Landsvirkjun eru því orðnar virkar. Raforkusölusamningur fyrirtækjanna er því orðinn fullgildur og bindandi fyrir báða aðila.

„Aflétting fyrirvara í samningi okkar við PCC markar merkan áfanga í raforkusölu Landsvirkjunar en með honum er staðfest að nýr viðskiptavinur bætist við stækkandi og sífellt fjölbreyttari viðskiptavinahóp Landsvirkjunar. Landsvirkjun hefur átt gott samstarf við PCC um gerð þessa samnings og ánægjulegt að hann sé nú í höfn eftir langt ferli,“ er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar í tilkynningu.

„Samningurinn er einnig mikilvægur fyrir framtíðaruppbyggingu iðnaðar á Bakka við Húsavík og við erum þess fullviss að kísilmálmframleiðsla á góða framtíðarmöguleika þar sem aðstæður henta iðnaðinum einkar vel.“ 

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK