Um fjórföld eftirspurn í útboði Ísfélagsins

Uppsjávarskipin Sigurður VE-15 og Heimaey VE-1, sem bæði eru í …
Uppsjávarskipin Sigurður VE-15 og Heimaey VE-1, sem bæði eru í eigu Ísfélagsins, við bryggju á Þórshöfn. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Alls bár­ust um 6.500 áskrift­ir að and­virði um 58 millj­arða króna í hluta­fjárút­boði Ísfé­lags­ins sem lauk fyrr í dag, föstu­dag. Það sam­svar­ar um fjór­faldri eft­ir­spurn, þar sem til stóð að selja hluti að and­virði um 16 millj­arða króna í útboðinu.

Í til­kynn­ingu til fjár­festa á vef Ísfé­lags­ins kem­ur fram að rúm­lega fimm­föld eft­ir­spurn var eft­ir þeim hlut­um sem boðnir voru í áskrift­ar­bók A og rúm­lega þreföld eft­ir­spurn var eft­ir hlut­um sem boðnir voru í áskrift­ar­bók B. Heild­ar­fjöldi seldra hluta í útboðinu nam um 118,9 millj­ón hlut­um og heild­ar­sölu­and­virði útboðsins nam tæp­lega 18 millj­örðum króna.

Í áskrift­ar­bók A er útboðsgengi 135 kr. á hlut og nem­ur sölu­and­virðið um 3,2 millj­örðum króna. Áskrift­ir starfs­manna fé­lags­ins og al­menn­ar áskrift­ir upp að 500 þúsund krón­um að kaup­verði voru ekki skert­ar, sem er í sam­ræmi við skil­mála útboðsins. Skerðing áskrifta var að öðru leyti hlut­falls­leg.

Í áskrift­ar­bók B, sem ætluð er fag­fjár­fest­um, er end­an­legt útboðsgengi 155 kr. á hlut og nem­ur sölu­and­virðið um 14,8 millj­örðum króna. Skerðing áskrifta var í sam­ræmi við skil­mála útboðsins og í til­kynn­ing­unni kem­ur fram að fjár­fest­ar sem til­greindu lægra útboðsgengi fengu ekki út­hlut­un.

Fjár­fest­um verður til­kynnt um út­hlut­un í útboðinu eigi síðar en á mánu­dag, 4. des­em­ber. Gjald­dagi áskrift­ar­loforða er 6. des­em­ber næst­kom­andi og er ráðgert að af­hend­ing hinna nýju hluta til fjár­festa fari fram þann 8. des­em­ber. Bréf fé­lags­ins verða tek­in til viðskipta á Aðal­markaði Kaup­hall­ar­inn­ar sama dag.

Einar Siguðsson, varaformaður stjórnar Ísfélagsins, og Stefán Friðriksson forstjóri.
Ein­ar Siguðsson, vara­formaður stjórn­ar Ísfé­lags­ins, og Stefán Friðriks­son for­stjóri. Árni Sæ­berg

„Við erum hæst­ánægð með mjög góðar viðtök­ur í útboði Ísfé­lags­ins sem end­ur­spegla trú fjár­festa á bæði fé­lagið og sjáv­ar­út­veg­inn. Við bjóðum fjöl­breytt­an hóp hlut­hafa vel­kom­inn,“ seg­ir Stefán Friðriks­son, for­stjóri Ísfé­lags­ins, í til­kynn­ing­unni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK