Hökkuðu Dropbox og nutu góðs af því

Anton segir að netöryggismál séu komin á dagskrá ráðamanna.
Anton segir að netöryggismál séu komin á dagskrá ráðamanna. Eyþór Árnason

Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir að orðspor félagsins sé gott á alþjóðamarkaði.

„Við höfum unnið fyrir mjög stóra aðila og aðstoðum reglulega Fortune 500-fyrirtæki [listi 500 tekjuhæstu fyrirtækja Bandaríkjanna ár hvert. Útsk. blm.] Þessi bransi byggist mikið á orðspori,“ segir hann.

Anton tekur dæmi af risafyrirtæki í viðskiptavinahópi Syndis.

„Við vorum fengin til að hakka Dropbox-gagnageymslufyrirtækið. Þeir sögðu síðan frá verkefninu opinberlega og við nutum góðs af þeirri umfjöllun.“

Anton segir að Syndis og Dropbox séu áfram í góðu sambandi.

„Öryggisstjórar í fyrirtækjum sem við erum í viðskiptum við segja öðrum frá ef þeir eru ánægðir með þjónustuna. Það er gaman að vinna fyrir stór og þekkt nöfn eins og Dropbox. Það lyftir upp andanum á vinnustaðnum.“

Anton segir að netöryggismál séu orðin framarlega á lista þegar ráðamenn landa hittast á fundum.

Eitt af stóru málunum

„Þetta er orðið eitt af stóru málunum. Það er iðulega á dagskrá íslenska utanríkisráðherrans þegar hann fundar með erlendum kollegum sínum. Við erum í Atlantshafsbandalaginu og erum því mögulegt skotmark eins og aðrir.“

Um framtíðina segir Anton að með sókn inn á Norðurlandamarkað ætli fyrirtækið sér á næstu fjórum árum að fimmfalda tekjurnar. Sé það metnaðarfullt markmið en fyllilega raunsætt.

Lestu ítarlegt samtal við Anton í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK