Arion banki hefur þegið sáttarboð Fjármálaeftirlitsins vegna annmarka á vörnum bankans gegn peningaþvætti, sem uppgötvuðust árið 2022. Bankinn greiðir 585 milljónir króna í sekt.
Sumarið 2022 gerði Fjármálaeftirlit Seðlabankans könnun á aðgerðum Arion banka „gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og skráningu og rekjanleika í upplýsingakerfum bankans í tengslum við þær aðgerðir,“ að því er segir í tilkynningu Arion banka um sáttina.
Þar segir að könnunin hafi leitt í ljós annmarka á framkvæmd bankans þegar kemur að almennu áhættumati vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka og áhættumati samningssambanda og einstakra viðskipta.
Einnig hafi verið annmarkar á framkvæmd áreiðanleikakannanna, reglubundins eftirlits og tilkynninga.
„Með sáttinni viðurkennir bankinn annmarka á framangreindri framkvæmd og þykir okkur miður að ekki hafi verið rétt staðið að málum á þessum tíma,“ segir í tilkynningu bankans.
Arion banki er ekki eini bankinn sem hefur þurft að greiða sekt vegna brota sem þessara. Fyrr í þessum mánuði gerði Íslandsbanki sátt við Fjármálaeftirlitið vegna annmarka á vörnum bankans gegn peningaþvætti og var bankanum gert að greiða 570 milljónir.