Karen Ýr Jóelsdóttir hefur tekið við starfi gæðastjóra Ölgerðarinnar og dótturfélaga þess. Hún tekur við starfinu af Guðna Þór Sigurjónssyni, sem nýverið var ráðinn forstöðumaður vaxtar og þróunardeildar félagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ölgerðinni.
Í tilkynningunni kemur fram að Karen taki við stjórnun og rekstri gæðadeildar og beri ábyrgð á gæðaeftirliti framleiðslu Ölgerðarinnar, auk annarra gæða- og öryggismála þvert á allar deildir fyrirtækisins og dótturfélaga. Þá segir að Karen, sem sitji í gæðaráði Ölgerðarinnar, sé formaður HACCP-ráðs og sjái um utanumhald gæðakerfis, auk innri og ytri úttekta.
Fram kemur að Karen sé menntaður matvælafræðingur frá Háskóla Íslands og hafi starfað hjá Ölgerðinni frá árinu 2016. Hún hafi hafið störf sem sumarstarfsmaður á rannsóknarstofu Ölgerðarinnar og hafi síðan þá sinnt flestum sérfræðistörfum innan gæðadeildar fyrirtækisins, meðal annars hafi hún stýrt innleiðingu á núverandi gæðakerfi þess.