Bústoð opnar í Garðabæ

Bústoð opnar nýja verslun í Garðabæ, en verslunin fagnar hálfrar …
Bústoð opnar nýja verslun í Garðabæ, en verslunin fagnar hálfrar aldar afmæli á næsta ári. Ljósmynd/Bústoð

Húsgagna- og gjafavöruverslunin Bústoð, sem fagnar 50 ára afmæli á næsta ári, opnaði nýja verslun að Miðhrauni 24 í Garðabæ í dag, fimmtudag.

Bústoð hefur verið starfrækt í Reykjanesbæ frá árinu 1975, en í tilkynningu frá versluninni segir að nýja verslunin í Garðabænum verði viðbót við núverandi starfsemi og að verslun félagsins í Reykjanesbæ muni áfram sinna viðskiptavinum á Suðurnesjunum.

Birgitta Ósk Helgadóttir, verslunarstjóri Bústoðar í Garðabæ, segist vera mjög spennt fyrir hinni nýju verslun. „Verslunin verður einstaklega falleg, opin, björt og notaleg. Um er að ræða glæsilegan 500 fermetra sýningarsal, þar sem við munum bjóða upp á allar okkar vinsælustu vörur ásamt töluvert af nýjungum,“ segir Birgitta Ósk.

Bætt þjónusta við höfuðborgarsvæðið

Hún segir jafnframt að markmiðið með opnun nýrrar verslunar sé að bæta þjónustuna við viðskiptavini Bústoðar á höfuðborgarsvæðinu, en þar hafi verið margir traustir viðskiptavinir á undanförnum árum og áratugum. 

„Bústoð er rótgróið fyrirtæki sem hefur náð góðum árangri í sölu innan sem utan Suðurnesja. Við bjóðum upp á vönduð húsgögn frá þekktum vörumerkjum sem hafa notið vinsælda hér á landi, eins og Calia Italia og skandinavískar vörur frá Skovby og Furnhouse. Við leggjum mikið upp úr góðri, persónulegri þjónustu og hóflegri álagningu alla daga ársins,“ segir Birgitta að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK