Aukin sókn í verðtryggð lán áhyggjuefni

Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Ljósmynd/Aðsend

Aukin sókn heimila og hluta fyrirtækja í verðtryggð lán er tiltekið áhyggjuefni enda
verður lækkun lánastabbans hægari alla jafna eftir því sem stærri hluti hans ber verðtryggðan höfuðstól.

Þetta segir Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka í
samtali við ViðskiptaMoggann. Fjallað er um Fjármálastöðugleikarit Seðlabankans í blaði dagsins.

„Skuldastaða heimila hefur góðu heilli lækkað áfram undanfarin misseri, t.a.m. í hlutfalli
við landsframleiðslu og ráðstöfunartekjur heimila. Þá eru skuldir fyrirtækja enn tiltölulega
hóflegar þótt þær hafi þokast upp sem hlutfall af landsframleiðslu,“ segir Jón Bjarki.

Töluverð breyting frá því í fyrra

Í Fjármálastöðugleika kemur fram að þyngri greiðslubyrði óverðtryggðra íbúðalána hefur
leitt til þess að ásókn heimila í verðtryggð íbúðalán hefur aukist.

Að fjárhæð lána óbreyttri er greiðslubyrði verðtryggðra lána léttari en óverðtryggðra lána í upphafi lánstíma. Jafnframt segir að líkt og heimilin hafi fyrirtækin sótt í auknum mæli í verðtryggð lán.

„Hefur sú þróun átt sér stað frá miðju síðasta ári. Tæplega 42% af hreinum nýjum útlánum til fyrirtækja voru í formi verðtryggðra lána á fyrstu sjö mánuðum ársins og um 20%
í formi óverðtryggðra lána. Er það töluverð breyting frá sama tímabili í fyrra þegar 21%
af hreinum nýjum útlánum voru verðtryggð og 47% óverðtryggð,“ segir í Fjármálastöðugleika.

Meira í ViðskiptaMogganum í dag. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK