Stýrivextir lækkaðir um 0,25 prósentustig

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Þetta er í fyrsta sinn síðan í nóvember árið 2020 sem Seðlabankinn lækkar vextina. 

Meginvextir bankans eru núna 9%. 

Fram kemur í tilkynningu að verðbólga hafi hjaðnað undanfarið en hún mældist 5,4% í síðasta mánuði. 

„Þótt ákveðnir einskiptisliðir vegi þungt hefur dregið úr umfangi og tíðni verðhækkana. Undirliggjandi verðbólga hefur jafnframt minnkað og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði lækkað,“ segir í tilkynningunni.

„Áfram virðist hægja á efnahagsumsvifum í takt við aukið peningalegt taumhald. Þá eru vísbendingar um að dregið hafi úr spennu á vinnumarkaði og svartsýni heimila og fyrirtækja hefur aukist.“

Fram kemur að þrátlát verðbólg, verðbólguvæntingar yfir markmiði og mikil innlend eftirspurn kalli þó á varkárni. Áfram þurfi því að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK