Arion banki lækkar vexti

Arion banki hefur ákveðið að lækka vexti. Þetta er gert í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands. 

Bankinn hafði tilkynnt um vaxtahækkarnir 11. september.

Fram kemur í tilkynningu á vef bankans, að óverðtryggðir inn- og útlánavextir Arion banka muni taka eftirfarandi breytingum:

Íbúðalán
Óverðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 10,64%
Óverðtryggðir fastir vextir lækka um 0,6 prósentustig og verða 8,8%

Bílalán
Kjörvextir bílalána lækka um 0,25 prósentustig
Kjörvaxtalán

Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,25 prósentustig

Yfirdráttarlán
Yfirdráttavextir lækka um 0,25 prósentustig

Innlán
Óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga lækka um allt að 0,35 prósentustig. Innlánsvextir veltureikninga eru óbreyttir. Vextir reikninga í erlendri mynt lækka um allt að 0,76 prósentustig, mismunandi eftir myntum og þeim breytingum sem átt hafa sér stað á stýrivöxtum viðkomandi lands, að því er segir í tilkynningunni. 

Þá segir, að vaxtabreytingar útlána taki mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgr að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafi aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

„Öll ný útlán bera nýju vextina frá og með 8. október. Breytingar á vöxtum inn- og útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK