Farþegum fjölgar og metstundvísi hjá Icelandair

Icelandair.
Icelandair. mbl.is/Árni Sæberg

Icelandair flutti 458 þúsund farþega í september, 10% fleiri en í september 2023. Þá náðist einnig metárangur í stundvísi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu um flutningatölur félagsins sem sendar voru í Kauphöll í dag. 

Þar segir að 31% farþega flugfélagsins í september voru á leið til Íslands, 16% frá Íslandi, 48% ferðuðust um Ísland og 5% innan Íslands.

Þá var sætanýting 83% og stundvísi 86,6% sem er hækkun um 5,6 prósentustig og er metárangur í september frá árinu 2009.

Kemur fram að Icelandair hefur flutt 3,6 milljónir farþega það sem af er ári og er það 8% fleiri en á sama tíma í fyrra.

Árangri náð með sameiginlegu átaki allra

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningunni að það ánægjulegt að sjá áframhaldandi fjölgun farþega og framúrskarandi stundvísi. Þá hafi flugfélagið undafarna mánuði verið á meðal stundvísustu stærri flugfélögum í Evrópu.

Segir hann félagið hafa lagt mikla áherslu á að bæta skilvirkni í rekstri sínum sem meðal annars hefur skilað sér í stórbættri stundvísi og segir hann þeim árangri hafa verið náð með sameiginlegu átaki alls starfsfólks.

„Við höldum áfram að þróa leiðakerfið okkar með spennandi nýjum áfangastöðum og samstarfi við önnur flugfélög. Sumarið 2025 hefjum við flug til Nashville í Bandaríkjunum og síðar í þessum mánuði bætist Lissabon í Portúgal við leiðakerfið,“ er haft eftir forstjóranum.

„Í september tilkynntum við um tilvonandi samstarf okkar við flugfélagið Southwest Airlines og verðum þar með þeirra fyrsta samstarfsflugfélag. Slíkir samstarfssamningar skipa mikilvægan sess í rekstri Icelandair en um það bil 10% af heildartekjum félagsins koma frá samstarfi við önnur flugfélög. Fyrir einstakar flugleiðir nema þessar tekjur allt að 40%.“

Tekur hann einnig fram að flugfélagið muni halda áfram að leggja áherslu á að fjölga samstarfsflugfélögum og bjóða viðskiptavinum enn meira úrval áfangastaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK