Nokkuð rólegt hefur verið á hlutabréfamarkaði í dag í kjölfar fregna af sprunginni ríkisstjórn og væntanlegra Alþingiskosninga í nóvember.
Helstu tíðindi á markaði eru að gengi hlutabréfa Íslandsbanka tók stökk í morgun þegar bréfin fóru upp í 118 krónur. Síðan er gengið komið niður í 117 krónur, sem þó er 3,54% hækkun.
Frumvarp um sölu á eftirstandandi hlut íslenska ríkisins í bankanum hefur legið fyrir frá því síðastliðið vor og var um þá ráðstöfun nokkur sátt innan ríkisstjórnarinnar, sem nú er sprungin.
Gengi hlutabréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum hefur aftur á móti lækkað nokkuð í dag.
Þannig hefur gengi Ísfélagsins lækkað um 3,55%, Síldarvinnslunnar um 3,13% og Brim um 2,85%. Engin viðskipti hafa verið með bréf í Iceland Seafood International það sem af er degi og gengi Eimskips hefur staðið í stað.
Það sem af er degi nemur velta á aðalmarkaði íslensku kauphallarinnar rúmlega 2 milljörðum króna.