Verðlagseftirlitsapp Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hefur fengið nýtt nafn og heitir nú Nappið. Áður hét appið Prís, en það fór í loftið undir lok síðasta árs.
Nappið hefur aukna virkni samanborið við Prís, en í nýju útgáfunni er hægt að leita eftir vörum án þess að skanna þær með strikamerki. Að því er fram kemur í tilkynningu er einnig hægt að skanna inn ný verð ef varan er ekki til í appinu eða verðið í versluninni hefur breyst.
Skömmu eftir að ASÍ gaf út Prís sótti Heimkaup um einkarétt á nafninu Prís til Hugverkastofu. Í samtali við mbl.is fyrr á þessu ári sagði Halldór Oddsson, lögfræðingur ASÍ, að þau vildu að Heimkaup myndi finna sér nýtt nafn.
Af því varð ekki og opnaði lágvöruverslunin Prís í ágúst á þessu ári. Nú hefur ASÍ skipt um nafn á appinu.
Í tilkynningu frá ASÍ segir að ný virkni appsins endurspeglist í nýja nafninu, þar sem almenningur hefur nú færi á að nappa verðhækkanir samstundis og taka þannig þátt í aðhaldi með verðhækkunum og að breikka vöruúrvalið sem fylgst er með.