Kostnaður geti orðið 10-20 milljarðar

Kostnaður Íslandsbanka tapi bankinn dómsmáli sem Neytendasamtökin hafa höfðað mun hlaupa á 10-20 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í samtali við Jón Guðna Ómarsson bankastjóra Íslandsbanka í viðskiptahluta Dagmála, sem sýndur er á mbl.is í dag. Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni.

Neytendasamtökin hafa höfðað dómsmál sökum þess að þau telja að skilmálar bankans á óverðtryggðum breytilegum vöxtum séu ekki nógu skýrir.

Jón Guðni segir að bankinn leiti allra leiða til að hafa skilmálana eins skýra og mögulegt sé.

„Út frá okkar sjónarhorni er þetta alveg skýrt. Við erum þó sífellt að breyta og bæta þessi mál. Mér finnst ólíklegt að við töpum þessu máli. Það er ekki líklegt að dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að við megum ekki breyta vöxtunum með nokkrum hætti. Líklegasta niðurstaðan er að við vinnum málið,“ segir Jón Guðni.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka í Dagmálum sem sýnd eru …
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka í Dagmálum sem sýnd eru á mbl.is í dag. mbl.is/María Matthíasdóttir
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK