Fjárfestingafélagið SKEL og Samkaup sem rekur verslunarkeðjuna Nettó hafa slitið samrunaviðræðum. Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Fram kemur í tilkynningunni að Samkaup hafi mætt rekstrarlegum áskorunum það sem af er ári.
Þar segir að matvörueiningar Heimkaups hafi einnig mætt slíkum áskornum, líkt og uppgjör SKEL fyrir fyrstu 6 mánuði ársins ber með sér.
SKEL gerði kröfu um að hluthafar Samkaupa myndu auka hlutafé félagsins fyrir samruna. Stjórn Samkaupa féllst ekki á þá kröfu og tilkynnti um slit á viðræðunum.
Haft er eftir Ásgeir Helga Reykfjörð forstjóra SKEL að félagið hafi fjárfest miklum tíma og undirbúningi í að koma á laggirnar þriðja stóra aflinu á íslenskum smásölumarkaði.
„Það eru því óneitanlega vonbrigði að það hafi ekki reynst fjárhagslegar forsendur fyrir því verkefni að þessu sinni. Við teljum að neytendur kalli eftir endurnýjun á matvörumarkaði, eins og nýleg opnun Prís sýnir. Í einfaldri mynd þá töldum við rétt og eðlilegt að dregið yrði úr áhættu í rekstri sameinaðs félags með innspýtingu eiginfjár og á það var ekki fallist. Við teljum að allir aðilar hafi unnið sín verkefni í þessu ferli af fullum heillindum og óskum Samkaup velfarnaðar í sinni vegferð. SKEL er óbeinn 5% hluthafi í Samkaupum og mun áfram fylgjast náið með þróun félagsins,“ er haft eftir Ásgeir í tilkynningu.