Framkvæmdastjórn Origo breytt

Framkvæmdastjórn Origo.
Framkvæmdastjórn Origo. Ljósmynd/Aðsend

Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn upplýsingafyrirtækisins Origo sem eru í takt við endurskipulagningu félagsins til að skilja að starfsemi eignarhaldsfélagsins Skyggnis og rekstrarfélagsins Origo.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Örn Þór framkvæmdastjóri orku og innviða

Örn Þór Alfreðsson verður framkvæmdastjóri orku og innviða, sem markar aukna áherslu á innviði, orku og lausnir fyrir gagnaver og aðra stórnotendur búnaðar.

Örn kemur úr hlutverki framkvæmdastjóra þjónustulausna og hefur starfað hjá Origo í yfir sex ár.

Fram kemur að hið nýstofnaða svið samanstandi af sérfræðingum með víðtæka reynslu og þekkingu á sviði innviða og orkulausna. Í samstarfi við heimsþekkta framleiðendur eins og Nvidia, Lenovo, IBM og Schneider Electric veiti starfsfólk sviðsins ráðgjöf um sérhæfðar lausnir sem mæta þörfum hvers og eins viðskiptavinar.

Ottó Freyr stýrir sviði þjónustu og reksturs

Ottó Freyr Jóhannsson tekur við sviði þjónustu og reksturs.

Ottó er með yfir 24 ára reynslu innan fyrirtækisins en síðustu ár hefur hann leitt fjölmörg teymi sérfræðinga sem forstöðumaður þjónustulausna Origo.

Fram kemur að með aukinni áherslu á rekstrarþjónustu sé lagt upp með að efla frekar vöru- og þjónustuframboð Origo til að styðja viðskiptavini í öruggum upplýsingatæknirekstri.

Lóa Bára framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála 

Lóa Bára Magnúsdóttir tekur við hlutverki framkvæmdastjóra sölu- og markaðsmála.

Hún hefur leitt markaðsstarf félagins en nú sameinast sölu- og markaðssvið með það markmið að samræma betur, efla samskipti og þjónustu við viðskiptavini og styðja við vöxt.

Í síðasta mánuði tók Árni Geir Valgeirsson við hlutverki framkvæmdastjóra hugbúnaðarsviðs, auk þess sem Sigurður Tómasson hefur verið framkvæmdastjóri vaxtar og viðskiptaþróunar síðan í september.

Gunnar Már Petersen er framkvæmdastjóri fjármála og Dröfn Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri mannauðs.

Í tilkynningunni segir að frá árinu 2018 hafi vörumerki Origo gegnt tveimur hlutverkum: annars vegar sem rekstrarfélag með fjölbreytt framboð á sviði upplýsingatækni og hins vegar sem móðurfélag fjölda dótturfélaga.

Tilgangurinn með skipulagsbreytingunni er að Origo ehf. leggi þyngri áherslu á vöruþróun og afhendingu framúrskarandi lausna og þjónustu til viðskiptavina.

Eignarhaldsfélagið Skyggnir einblínir aftur á móti á að styðja eignasafn sitt til árangurs, en þar eru fjölbreytt félög innan upplýsingatækni, m.a. Origo ehf., Syndis, Helix og fleiri.

„Með bæði nýja liðsmenn og uppröðun í lykilhlutverk styrkjum við stjórnendateymið okkar enn frekar og tryggjum að við séum í stakk búin til að takast á við áskoranir og tækifæri framtíðarinnar. Skipulagið endurspeglar þá megináherslu að hjálpa viðskiptavinum okkar að ná hámarksárangri með því að hagnýta upplýsingatækni, hvort sem er á sviði framsækinna hugbúnaðarlausna, hagkvæmum rekstri öruggra tölvukerfa eða uppbyggingu á grunninnviðum samfélagsins á sviði gagnavera og orkuinnviða,“ er haft eftir Ara Daníelssyni forstjóra Origo í tilkynningunni.

„Í framkvæmdastjórninni mætist fjölbreytt reynsla og ný sýn sem mun efla nýsköpun, bæta þjónustu og árangur viðskiptavina og stuðla að áframhaldandi vexti og þroska félagsins. Ég er sannfærður um að þessar breytingar munu skila okkur og viðskiptavinum okkar framúrskarandi árangri á komandi árum,” segir hann enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka