Stýrivextir lækkaðir um 0,5 prósentustig

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentustig. 

Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,5%.

Fram kemur í tilkynningu að verðbólga hafi hjaðnað undanfarið en hún mældist 5,1% í október. „Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Þá hafa verðbólguvæntingar almennt lækkað og raunvextir því hækkað,” segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. 

Önnur lækkunin í röð

Þetta er annað skiptið í röð sem nefndin lækkar vexti bankans, en í október voru þeir lækkaðir um 0,25 prósentustig. Var það í fyrsta skiptið í næstum fjögur ár, eða frá nóvember 2020 sem Seðlabankinn lækkaði vexti.

Hæst fóru vextir bankans á síðustu árum í 9,25%. Héldust þeir þannig frá ágúst í fyrra þangað til í ágúst í ár.

Bæði hagfræðideild Landsbankans og greiningardeild Íslandsbanka höfðu spáð 0,5 prósentustiga vaxtalækkun hjá Seðlabankanum. Íslandsbanki hafði þó þann fyrirvara á að lækkunin gæti numið 0,25 prósentustigum.

Dragi úr spennu í þjóðarbúinu

„Áhrifa þétts peningalegs taumhalds gætir áfram í efnahagsumsvifum og hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar. Atvinnuleysi heldur áfram að þokast upp og horfur eru á að það dragi úr spennu í þjóðarbúinu þótt það gerist hægar en áður var talið," segir jafnframt í yfirlýsingu peningastefnunefndar. 

„Þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalla þó á varkárni. Áfram þarf því að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma. Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir þar einnig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka