Verðbólgan komin undir fimm prósent

Verðbólgan lækkar um 0,3 prósentustig milli mánaða.
Verðbólgan lækkar um 0,3 prósentustig milli mánaða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tólf mánaða verðbólga mæl­ist nú 4,8% og lækk­ar um 0,3 pró­sentu­stig frá fyrri mánuði. 

Þrjú ár eru liðin frá því að verðbólga mæld­ist síðast und­ir 5%, en það var í nóv­em­ber 2021. Mæld­ist hún þá líka 4,8%.

Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis síðastliðna tólf mánuði mæl­ist 2,7%.

„Vísi­tala neyslu­verðs, miðuð við verðlag í nóv­em­ber 2024, er 634,7 stig (maí 1988=100) og hækk­ar um 0,09% frá fyrri mánuði. Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis er 509,8 stig og lækk­ar um 0,20% frá októ­ber 2024,“ seg­ir í til­kynn­ingu Hag­stof­unn­ar.



mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK