Bjartsýni verðlögð inn í Bandaríkjunum

AFP

Á árinu 2024 hefur S&P 500-vísitalan staðið sig vel, árleg ávöxtun upp á 28,55% til dagsins í dag. Þetta felur í sér 26,86% hækkun á verði hlutabréfa auk 1,69% ávöxtunar vegna arðgreiðslna. Þessi aukning endurspeglar almennt sterkan hagvöxt í Bandaríkjunum, aukinn hagnað fyrirtækja, lægri verðbólgu og bjartsýni á hlutabréfamarkaði.

Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku segir að ávöxtunin á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum hafi farið með himinskautum á árinu.

„Þessi mikla hækkun frá áramótum hefur að hluta til verið dregin áfram af auknum hagnaði fyrirtækja, sem getur vel verið sjálfbært til lengri tíma. Þau fyrirtæki sem hafa haft eitthvað með gervigreind að gera hafa gert stórlega vel á árinu. Verðlagning og kennitölur á bandaríska markaðnum hafa hins vegar einnig hækkað mikið og verðlagningin í Bandaríkjunum er orðin svakalega há, sama á hvaða kennitölur maður lítur, því þær eru allar nálægt sögulegu hámarki,“ segir Hafsteinn.

Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku.
Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku. Ljósmynd/Aðsend

Spurður hvernig hann telji að gangurinn verði á mörkuðum á næsta ári segir Hafsteinn að hann sé fyrir vikið minna bjartsýnn í ljósi þess hversu miklar hækkanir hafa þegar komið fram.

„Það er búið að verðleggja mikla bjartsýni inn í markaðinn þannig að þó að hagnaður fyrirtækja aukist eins og ég á von á, þá er líklegt að kennitölurnar þurfi að lækka á móti til að koma markaðnum aftur í áttina að sjálfbærri verðlagningu og því ólíklegt að við fáum annað ár af álíka ávöxtun og við sáum á þessu ári,“ segir Hafsteinn.

Hafsteinn segir að áhugavert verði að fylgjast með hvaða áhrif stefna nýkjörins forseta Bandaríkjanna kunni að hafa á hagkerfið. Segja megi að meginstefnur Trumps togist á sitt í hvora áttina.

Greinin birtist í ViðskiptaMogganum sem kom út í morgun.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK