Samkaup og Heimkaup hafa skrifað undir samkomulag um helstu forsendur sameiningar félaganna með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og hluthafafund beggja félaga. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.
Samkaup er yfirtökufélagið og sameinast þar með öllum einingum Heimkaupa á matvörumarkaði og greiðir fyrir þau með útgefnu hlutafé í Samkaupum.
Önnur félög í eigu SKEL á neytendamarkaði, þ.e. Orkan, Lyfjaval og Löður, eru ekki hluti af samrunanum. Þetta merkir að undir rekstri Samkaupa verða verslanir undir merkjum 10-11, Prís, Extra auk þriggja þægindaverslana sem reknar eru á þjónustustöðvum Orkunnar. Þá á Heimkaup eignarhlut í veitingafélaginu Clippers ehf. sem m.a. rekur Sbarro.
SKEL fjárfestingafélag hf., sem er eigandi að 81% hluta í Heimkaup og Samkaup hf. hafa á árinu átt í viðræðum um samruna Samkaupa og tiltekinna dótturfélaga SKEL. Þeim viðræðum var slitið í lok október en í framhaldinu hófust viðræður um sameiningu rekstrareininga á matvælamarkaði. Að mati samrunaaðila getur samlegð í rekstri umræddra félaga orðið umtalsverð.
Eftir sameiningu fái hluthafar Heimkaupa greitt með hlutafé í Samkaupum og eignast þar með rúmlega 10% hlutafjár í Samkaupum. Fyrir viðskiptin er SKEL eigandi að 5% eignarhlut í Samkaupum í gegnum eignarhaldsfélag. Hluthafasamkomulag meðal stærstu hluthafa í Samkaupa gerir ráð fyrir skráningu félagsins á hlutabréfamarkað.
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL segir að sameinað félag hafi burði til að nýta sér þau tækifæri sem nú eru á dagvörumarkaði.
„Neytendur kalla á aukna samkeppni og nýungar á smásölumarkaði eins og móttökur Prís verslunarinnar sem opnaði fyrr á árinu sýna. Heimkaup hefur frá upphafi lagt áherslu á nýjungar á borð við netverslun og nú síðast með Prís sem ítrekað hefur boðið neytendum lægsta verð á mat- og dagvöru. Hagsmunir SKEL eru áfram þeir sömu á smásölumarkaði með hlutdeild í Samkaup og óbreyttu eignarhaldi á Lyfjavali og Orkunni. SKEL mun áfram leita leiða til að auka samkeppni og fjölbreytni með arðbærum hætti í fjárfestingum sínum á smásölumarkaði,“ segir Ásgeir.