Kaupa Jarðarberjaland

Knútur Rafn Ármann á og rekur Friðheima ásamt eiginkonu sinni …
Knútur Rafn Ármann á og rekur Friðheima ásamt eiginkonu sinni Helenu Hermundardóttur. mbl.is/Árni Sæberg

Garðyrkjustöðin og ferðaþjónustufyrirtækið Friðheimar í Reykholti í Biskupstungum hefur fest kaup á Jarðarberjalandi, umsvifamesta jarðarberjaræktanda á Íslandi.

Knútur Rafn Ármann, sem á og rekur Friðheima ásamt eiginkonu sinni Helenu Hermundardóttur, segir í samtali við Morgunblaðið að Friðheimar taki við rekstrinum 1. janúar næstkomandi.

„Við erum mjög spennt að taka við. Jarðarberjaland er nágrannagarðyrkjustöð okkar. Hún var endurbyggð frá grunni árið 2022 eftir að hafa skemmst í óveðri. Stöðin er sérhæfð í heilsársræktun á jarðarberjum og býr yfir mjög fullkomnum tækjabúnaði,“ útskýrir Knútur.

Sextíu tonn af berjum

Hann segir að í stöðinni séu ræktuð sextíu tonn af jarðarberjum á ári.

„Þetta atvikaðist þannig að það hafði verið samtal á milli okkar sem þróaðist í þessa átt. Eigendurnir voru til í að hægja á og njóta lífsins eftir farsælt ævistarf og við vorum klár í að koma að starfseminni og kaupa.“

Jarðarberjaland er upplýst stöð, 4.000 fermetrar að flatarmáli. Jarðarber eru tínd þar allar vikur ársins.

„Stöðin er mjög flott á alþjóðlegum mælikvarða og hefur náð frábærum árangri í gæðum og uppskeru.“

Friðheimar hafa ræktað tómata í þrjátíu ár en á seinni árum hefur ferðaþjónustan orðið sífellt umsvifameiri þáttur í rekstrinum.

„Við erum með heilsársræktun á tómötum í ellefu þúsund fermetra upplýstum gróðurhúsum. Það er margt svipað í ræktun tómata og jarðarberja. Þekkingin nýtist á milli.“ Átta manns starfa hjá Jarðaberjalandi.

„Þetta er flottur hópur sem hefur verið lengi hjá félaginu og mun halda áfram og verða okkur innan handar í rekstrinum.“

Knútur segir að þau Helena taki við mjög góðu búi.

„Við munum vafalítið breyta einhverju í fyllingu tímans. Það eru möguleikar til stækkunar og pláss á markaðnum fyrir fleiri íslensk jarðarber. Þessi afurð er eitt skýrasta dæmið um hágæðaafurð, sjálfbæra úr íslenskri ylrækt. Orkan er græn og engin eitur eða varnarefni notuð.“

Knútur segir að jarðarberin muni fléttast skemmtilega inn Vínstofu Friðheima – nýjasta verkefni fyrirtækisins.

„Við opnuðum vínstofuna árið 2023. Við erum nú þegar að bjóða þar upp á jarðarberjakokkteila. Einn af okkar - um jarðarberjum og kampavíni.“

Ísland hentar vel fyrir jarðarberjaræktun innanhúss að sögn Knúts.

„Berin þurfa ekki of mikinn hita.“

Greinina í heild sinni má lesa í Morgunblaðinu sem kom út í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK