Tinna tekur við Arango

Tinna hefur yfir 20 ára reynslu af upplýsingatæknigeiranum.
Tinna hefur yfir 20 ára reynslu af upplýsingatæknigeiranum.

Tinna Björk Hjartardóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknifyrirtækisins Arango.

Í fréttatilkynningu segir að hún hafi starfað hjá Arango í tæp tvö ár sem ráðgjafi og sé einn af eigendum félagsins ásamt því að hafa komið að stofnun félagsins.

Þá kemur fram í tilkynningunni að Sigurður Hilmarsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri frá stofnun Arango árið 2019, starfi áfram hjá félaginu í hlutverki ráðgjafa og fjármálastjóra ásamt því að vera einn eigandi félagsins og stjórnarformaður.

Yfir 20 ára reynsla

Tinna hefur yfir 20 ára reynslu af upplýsingatæknigeiranum og er með B.Sc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur gegnt fjölbreyttum störfum sem ráðgjafi og stjórnandi, meðal annars hjá Microsoft á Íslandi, xRM Software, Annata, Applicon og síðast hjá Marel þar sem hún starfaði í rúmlega fimm ár áður en hún kom til Arango.

„Arango hefur vaxið og náð frábærum árangri undanfarin ár, bæði þegar horft er til uppbyggingar vinnustaðarins og góðs starfsanda en ekki síst þegar við horft er til fjölda viðskiptavina og fjölbreyttra verkefna. Ég er því gríðarlega spennt að leiða þá vegferð og móta framtíðina,“ segir Tinna Björk í tilkynningunni.

Leiðandi í stafrænum lausnum

Eins og fram kemur í tilkynningunni þá er Arango leiðandi fyrirtæki á íslenskum markaði í innleiðingum á stafrænum lausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. „Lausnir Arango eru byggðar á Microsoft Power Platform sem er öflug svíta lausna í skýinu frá Microsoft og hentar íslenskum fyrirtækjum og stofnunum til að sjálfvirknivæða ferla, smíða öpp og aðrar gagnvirkar lausnir fyrir ýmis notkunartilvik á auðveldan hátt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK