Vildu ekki verja of miklum tíma í þjálfun

Ólafur Karl Sigurðarson hóf störf hjá KAPP sl. haust.
Ólafur Karl Sigurðarson hóf störf hjá KAPP sl. haust. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Tæknifyrirtækið KAPP keypti þrotabú Skagans 3X á síðasta ári. Gjaldþrot fyrirtækisins var mikið áfall fyrir atvinnulíf á Akranesi síðasta sumar en 128 misstu vinnuna.

Ólafur Karl Sigurðarson, nýráðinn aðstoðarforstjóri KAPP, segir að búið sé að ráða 25 starfsmenn til hins endurreista félags sem heitir nú KAPP Skaginn. Hann segir að fleiri hafi viljað fá vinnu en hægt var að ráða í upphafi. „Við stígum ábyrg skref í því og sníðum okkur stakk eftir vexti. Við ráðum fólk samhliða verkefnum og erum núna komin í um 25 stöðugildi en við erum einnig að samnýta mannskap á milli félaga,“ segir Ólafur í samtali við ViðskiptaMoggann.

Vildu byrja hratt

Ólafur segir það hafa verið meðvitaða ákvörðun að ráða í fyrsta fasa aðeins starfsmenn sem höfðu unnið hjá fyrirtækinu áður. „Ástæðan fyrir því var að við vildum geta hafið störf strax, án þess að þurfa að verja miklum tíma í þjálfun. Við vildum geta byrjað hratt og þessar ráðningar gerðu okkur kleift að gera það. Við fórum strax eftir kaupin í október að senda sölumenn í söluheimsóknir og framleiðslufólk fór að gera félagið hæft fyrir framleiðslu og þjónustu.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK