Sjá mikil tækifæri í samstarfinu

Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka og Guðný Helga Herbertsdóttir forstjóri …
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka og Guðný Helga Herbertsdóttir forstjóri VÍS segja tækifærin spennandi. Ljósmynd/Aðsend

Íslandsbanki og VÍS skrifuðu í gær undir samstarfssamning. Rauði þráðurinn í samstarfinu er að viðskiptavinir, sem eru í viðskiptum við bæði félög, njóta sérstaks ávinnings í vildarkerfum beggja félaga. Með samstarfinu fá viðskiptavinir jafnframt betri yfirsýn yfir fjármálavörur og tryggingar.

Samhliða kemur VÍS til með að bjóða upp á þjónustu í nokkrum af útibúum Íslandsbanka og vera með sýnileika í öllum dreifileiðum bankans, vef, appi og netbanka. VÍS er í dag með þjónustuskrifstofur á sjö stöðum en Íslandsbanki er með 12 útibú.

Með samstarfinu er þjónusta við viðskiptavini beggja félaga aukin og horft til fjölgunar viðskiptavina og þess að auka ánægju núverandi viðskiptavina. Samstarfið og útfærslur þess verða kynntar nánar á vormánuðum.

Styrkja stöðu sína

Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir að samstarfið sé liður í að styrkja stöðu bankans í samkeppnisumhverfinu.

„Það hafa átt sér stað miklar breytingar á banka- og tryggingamarkaðinum á undanförnum árum. Við hyggjumst bjóða viðskiptavinum okkar góð kjör bæði á banka- og tryggingamarkaði. Liður í því er að viðskiptavinir geta nú nálgast alla sína þjónustu bæði hjá Íslandsbanka og VÍS í appinu. Við hyggjumst líka nýta öflug fríðindakerfi beggja félaga,“ segir Jón Guðni.

Spennt fyrir samstarfinu

Guðný Helga Herbertsdóttir forstjóri VÍS segist vera gríðarlega spennt fyrir samstarfinu.

„Það hafa orðið miklar breytingar á bankamarkaðinum og samkeppnisumhverfinu. Þetta er okkar svar við því. Þessi þróun er að eiga sér stað bæði hér á landi og erlendis. Það eru margir snertifletir hjá báðum félögum við viðskiptavini á mikilvægustu augnablikum í lífi þeirra, allt frá barnsfæðingu að húsnæðiskaupum og starfslokum. Við höfum tækifæri til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur á þessum augnablikum með það að markmiði að auka virði fyrir þá. Ég er þess fullviss að þetta sé mikið heillaskref fyrir bæði félög en ekki síst fyrir viðskiptavini,“ segir Guðný Helga.

Útiloka ekki frekara samstarf

Spurður hvort samstarfið við VÍS sé fyrsta skrefið að frekara samstarfi við Skaga, móðurfélag VÍS, segir Jón Guðni að tíminn verði að leiða það í ljós.

„Við útilokum ekkert í því sambandi. Þetta samstarf er gott skref og tryggir samkeppnisstöðu okkar en hvað verður í framtíðinni verður tíminn að leiða í ljós,“ segir Jón Guðni og Guðný tekur undir.

„Ég get bara talað um það sem við erum að kynna í dag, það verður síðan að koma í ljós hver næstu skref verða og hvernig markaðurinn mun þróast,“ segi Guðný.

Greinin birtist í Morgunblaðinu í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK