Samkvæmt frétt CNN lítur bankastjóri alþjóðabankans JPMorgan Chase, Jamie Dimon, á hótanir Donalds Trump um tolla sem einfalda samningatækni.
Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, hefur lýst því yfir að hann muni setja 10% tolla á allar vörur innfluttar frá Kína og 25% tolla á vörur frá Mexíkó og Kanada. Einnig hefur hann hótað auknum tollum á vörur frá Evrópusambandinu. Gert er ráð fyrir að sumir þessa tolla taki gildi 1. febrúar.
Dimon er þessa dagana staddur í Davos í Sviss á World Economic Forum. Þar virðist hann vera nokkuð kokhraustur meðal elítunnar og segir mönnum einfaldlega að þetta sé staðan. Þetta sé líka fín samningatækni hjá forsetanum. Hins vegar sé augljóst að Trump sé með þessu að fá lönd heimsins að borðinu til að stokka upp spilin á ný, Bandaríkjunum í hag. Alls ekki sé víst að þessir tollar verði að veruleika. Trump sé samningamaður. Leiðtogar þurfi að spila leikinn líka.
Þessir tollar sem Trump talar um geta hins vegar leitt til þess að ýmsar vörur hækki í verði innan Bandaríkjanna, enda er mikið flutt inn til landsins frá þessum löndum. Sem dæmi kom um helmingur af virði alls bílainnflutnings til Bandaríkjanna á síðasta ári frá Mexíkó, Kanada og Kína.
Ástæðan er að margir af umsvifamestu framleiðendum heims hafa reist verksmiðjur í Mexíkó til að nýta sér lægri launakostnað og samninga á borð við NAFTA (North American Free Trade Agreement). Áætlað er að um ein milljón starfa sé í Mexíkó vegna bílaframleiðslu.
Trump hefur ítrekað lýst því yfir að framleiðsla eigi að vera sem mest innan Bandaríkjanna, það sé hagur almennings sem og þjóðaröryggis. mj@mbl.is