Marinó Örn Tryggvason fyrrverandi forstjóri Kviku og stofnandi ARMA Advisory segist líta á sig sem Akureyring, en hann flutti þangað fimm ára gamall. Þar var hann búsettur uns hann flutti suður til að nema viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Hann segir að hann hafi stefnt á að fara til útlanda í meistaranám en stuttu eftir útskrift úr viðskiptafræðinni var honum boðin vinna í Kaupþingi.
„Ég ætlaði að vinna þar í 2-3 ár og fara svo til útlanda en mér þótti svo gaman í vinnunni að það varð aldrei af því,“ segir Marinó.
„Þegar litið er í baksýnisspegilinn er ég stoltur af því hvernig tókst að fara í gegnum hrunið, en það tók verulega á. Ég stjórnaði hluta af eignastýringu bankans á Íslandi og við vorum aðallega að starfa fyrir lífeyrissjóði. Þarna var maður að starfa í umhverfi þar sem óvissa var í hámarki og það þurfti að taka margar erfiðar ákvarðanir. Sem betur fer höfðum við markvisst minnkað áhættu á árunum 2007 og 2008,“ bætir hann við.
Marinó starfaði hjá Kaupþingi og síðar Arion banka til ársins 2017 og allan tímann í eignastýringu og í ýmsum hlutverkum á því sviði. Árið 2017 söðlaði Marinó um og var ráðinn til Kviku sem aðstoðarforstjóri og að tveimur árum liðnum tók hann við sem forstjóri. Hann starfaði hjá Kviku þar til hann lét af störfum í ágúst 2023.
Spurður hvað sé eftirminnilegasta verkefnið sem hann hafi komið að á ferlinum segir Marinó að það hafi líklega verið endurskipulagning Icelandair sem átti sér stað á covid-tímanum.
„Þetta var þjóðhagslega mikilvægt verkefni og mér þótti það vera þegnleg skylda þegar ég starfaði sem forstjóri Kviku að hjálpa til. Þarna var eitt stærsta félag landsins með litlar sem engar tekjur og óvissa framtíð. Við búum á eyju og líklega er ekkert mikilvægara fyrir okkur en greiðar samgöngur og fjarskipti. Ég hafði raunverulegar áhyggjur að Icelandair kæmist ekki í gegnum covid-tímann,“ segir Marinó en umrætt verkefni stóð yfir í níu mánuði.
„Það er þó allt annað mál að aðstoða einhvern eða vera sjálfur í eldlínunni og bera ábyrgðina á rekstrinum. Bogi Nils forstjóri Icelandair og Eva Sóley, sem þá starfaði sem fjármálastjóri, og þeirra samstarfsfólk unnu þrekvirki undir miklu álagi. Ég hef sjálfur aldrei farið í gegnum svona alvarlegan atburð,“ segir Marinó.
Önnur eftirminnileg áskorun sem hann hafi glímt við á ferlinum hafi verið kaup Kviku á GAMMA.
„Það var erfitt verkefni, þegar kom í ljós að staða félagsins var mun verri en áður hafði verið talið. Þetta er í fyrsta sinn og eina skiptið á ferlinum þar sem ég hef átt erfitt með svefn vegna starfa minna. Rakarinn minn sagði við mig á þessum tíma að hann hefði aldrei séð neinn fá grá hár jafnhratt. Það er erfitt að hafa áhyggjur af hlutum sem maður hefur litla stjórn á,“ segir Marinó.
Hann bætir við að fjárhagslega áhættan hafi ekki verið mikil. Efnahagsreikningur bankans var sterkur þegar kaupin voru gerð.
„Það var þó áhætta að markaðsaðilar gætu metið að vegna þess að GAMMA stóð veikt væri bankinn veikur. Ef banki hefur ekki traust er banki ekki lengur með rekstrargrundvöll. Það var þarna sem ég áttaði mig á því hvað orðsporsáhætta er stór áhættuþáttur. Ef eitthvað er, þá er hún meiri áhætta en sú fjárhagslega því það er erfitt að bregðast við henni þegar til kastanna kemur,“ segir Marinó.
Lesa má viðtalið í heild sinni í ViðskiptaMogganum sem kom út sl. miðvikudag.