Brögð eru að því að fólk panti vörur á netinu og fái sendingu með sem dæmi DHL innan 24 tíma frá vöruhúsi í Evrópu til landsins. DHL er síðan með samninga við Póstinn hérlendis sem í sumum tilfellum dreifir fyrir fyrirtækið. Viðskiptavinir geta vel fylgst með sendingunum rafrænt og flestir ánægðir með þjónustuna þangað til varan er komin í hendur Póstsins. Þá tekur við bið.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru dæmi þess að bið eftir vöru, sem er komin til landsins, áður en hún berist viðskiptavinum sé allt að vika. Pósturinn hefur þá samband og óskar eftir því að sendingin sé sótt í pósthús í Síðumúla, jafnvel þótt greitt sé fyrir heimsendingu.
Morgunblaðið innti forsvarsmenn Póstsins eftir viðbrögðum, sem vísuðu einungis á almennt verklag en báru fyrir sig að ekki væri hægt að ræða einstaka sendingar. Ekki var kannast við slíkar tafir.
Stutt er síðan Pósturinn ofmat kaup Íslendinga á netinu miðað við verðmæti innflutnings með póstsendingum um milljarða á mánuði allt síðasta ár í gögnum til Hagstofunnar.
Greinin birtist í Morgunblaðinu í morgun.