Áhrif loðnubrests mögulega ofmetin

Gengi sjávarútvegsfélaganna hefur lækkað nokkuð í kjölfar loðnufrétta.
Gengi sjávarútvegsfélaganna hefur lækkað nokkuð í kjölfar loðnufrétta. mbl.is/Börkur

Loðnuleit stendur enn yfir án endanlegra niðurstaðna. Hafrannsóknastofnun greindi frá því eftir lokun markaða á föstudaginn að bráðabirgðaniðurstöður loðnumælinga gæfu til kynna að ráðgjöf um engar veiðar veturinn 2024/2025 yrði ekki breytt.

Gunnar Erlingsson, skuldabréfamiðlari í markaðsviðskiptum Arionbanka, segir að heilt yfir hafi tíðindin ekki mikil áhrif á markaði. Þannig gerðu aðilar á gjaldeyrismarkaði ekki ráð fyrir að loðna myndi finnast, auk þess sem ekki var gert ráð fyrir henni sérstaklega í hagspám. Þar af leiðandi höfum við ekki séð sérstök viðbrögð, hvorki á gjaldeyrismarkaði né skuldabréfamarkaði.

„Hlutabréfamarkaður er hins vegar næmari fyrir fréttum af niðurstöðum loðnuleitar og lækkuðu skráðu sjávarútvegsfélögin til að mynda í fyrradag. Þá er ekki öll von úti þar sem enn er verið að leita og jákvæðar niðurstöður frekari loðnuleitar gætu snúið við þeirri þróun. Mögulega eru áhrif loðnubrests á sjávarútvegsfélögin ofmetin af markaðsaðilum,“ segir Gunnar í samtali við ViðskiptaMoggann.

Greinin birtist í ViðskiptaMogganum í morgun.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK