Inga Sæland, eineltið og lögin í landinu

Heimilisfólk Flokks fólksins hér við borðið hennar Ingu Sæland leiðtoga.
Heimilisfólk Flokks fólksins hér við borðið hennar Ingu Sæland leiðtoga. mbl.is/Eyþór

Inn­herji er skoðana­dálk­ur ViðskiptaMogg­ans.

Inga Sæland, límið í nýrri ríkisstjórn, og hennar eldhúsflokkur með húskarlinn innanborðs og sjálfskipaðan leiðtoga gegn spillingu í samfélaginu og áætlaður formaður fjárlaganefndar, Ragnar Þór Ingólfsson, eru í vandræðum.

Inga og Ragnar hafa í gegnum tíðina sjaldan sparað stóryrðin þegar þau hafa sakað stjórnvöld og stjórnkerfi landsins allt um spillingu og vanvirðingu við meðferð á almannafé. Nú er komið í ljós að þau hefðu bæði frekar átt að hrópa hvort á annað.

Eldhúsflokkurinn hennar Ingu hefur þegið hundruð milljóna úr sjóðum almennings án þess að uppfylla skýrar kröfur sem gerðar eru til stjórnmálaflokka sem þiggja slíkt opinbert fé árum saman. Nú lýsir hún því glaðhlakkalega yfir að þetta flokkist allt undir „tittlingaskít“ eins og hún segir sjálf. Bætir síðan við að henni detti ekki í hug að greiða peninginn til baka, hnýtir síðan í persónu blaðamannsins sem spyr hana erfiðu spurninganna og sakar hann um falsfréttir.

Boltinn er hjá Kristrúnu forsætisráðherra og Daða Má fjármálaráðherra, varðhundi almannafjármagns, ásamt Þorbjörgu Sigríði nýjum dómsmálaráðherra enda lög um styrki til stjórnmálaflokka á hennar könnu og stofnanir er taka á viðurlögum við broti á slíkum lögum.

Nú þarf Kristrún að sýna að það sé eitthvað að marka hinar miklu yfirlýsingar um aðhald í ríkisrekstri og styrka hönd þegar kemur að meðferð á almannafé. Ríkisstjórnin þarf að sýna skýrt að það er enginn ofar lögunum. Sérstaklega ekki stjórnmálamenn, um þá ætti að ríkja enn meiri krafa að uppfylla lög landsins og formreglur.

Stjórnmálamennirnir nýju benda hins vegar allir á einhvern annan. Svar nýrrar ríkisstjórnar, hingað til, er eins og í laginu Lög og regla hjá Bubba, „þetta kvöld var ég var að æfa lögreglukórinn“. Lögreglukórinn var reyndar á sama tíma í útboði á bifreiðum. Knúnum rafmagni en samt með krók. Það er önnur saga.

Það er ekki boðlegt að reyna að hlaupa í skjól eins og Inga og bera fyrir sig einelti. Þeir sem hafa tekið eitthvað frá almenningi sem þeir eiga ekki rétt á eiga einfaldlega ekki skilinn neinn frið.

Það er skýrt í lögum um starfsemi stjórnmálaflokka hver viðurlög við brotum gegn þeim eru. Allt er það tilgreint í 13 gr. laganna. Upptaka fjármagns, sektir og farið að hegningarlögum séu aðilar uppvísir að ásetningi eða gáleysi. Inga Sæland hefur lýst yfir sinni vitneskju um formgalla en samt þegið fjármunina. Það er því mikil pressa á yfirvöld að fara að lögum. Ef það eru síðan fleiri stjórnmálaflokkar sem þetta á við um á að sjálfsögðu að rannsaka það líka.

Kristrún forsætisráðherra þarf að gera það sem er augljóst, fá varðhunda ríkisins og þar með Ríkisendurskoðun til að fara að lögum og fá fjármálaráðherra til að gæta hagsmuna skattgreiðenda í stað þess að verja óverjandi verk eins stjórnarflokksins til að bjarga ríkisstjórnarsamstarfinu.

Afnema síðan þessa sjálftöku Alþingis sem styrkir til stjórnmálaflokka hafa verið um langa hríð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK