Bandaríski seðlabankinn tilkynnti í dag að stýrivextir yrðu óbreyttir eftir þrjár vaxtalækkanir í röð. Standa þeir nú í 4,50 prósentum.
Er ákvörðunin í takt við spár hagfræðinga.
Ákvörðunin er tekin í andstöðu við vilja nýkjörins Bandaríkjaforseta, Donalds Trumps, sem hafði þrýst á bankann að lækka vextina í fyrstu vaxtaákvörðuninni sem er tekin eftir að hann tók við embætti.