Verðbólgan komin niður í 4,6%

Verðbólgan er að trappa sig niður.
Verðbólgan er að trappa sig niður. Ljósmynd/Colourbox

Tólf mánaða verðbólga mæl­ist nú 4,6% og lækk­ar um 0,2 pró­sentu­stig frá fyrri mánuði.

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í janúar 2025, er 635,5 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,27% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 510,2 stig og lækkar um 0,29% frá desember 2024, að því er segir á vef Hagstofu Íslands. 

Þá segir að verð á áfengi og tóbaki hafi hækkað um 3,9% (áhrif á vísitöluna 0,10%) og kostnaður vegna rafmagns og hita hafi hækkað um 3,5% (0,11%). Einnig hækkaði verð á bensíni og olíum um 3,6% (0,13%).

Grafík/Hagstofa Íslands

Bent er á að vetrarútsölur séu víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 6,9% (-0,26%), húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. um 4,6% (-0,23%) og raftæki um 9,5% (-0,11%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 16,1% (-0,36%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,0%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2025, sem er 635,5 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2025 að sögn Hagstofu Íslands. 

Í næstu viku, n.t.t. 5. febrúar, mun peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynna fyrstu vaxtaákvörðun ársins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK