Sigurður Viðarsson, framkvæmdastjóri Hili á Íslandi, var gestur í viðskiptahluta Dagmála þar sem hann ræddi um starfsemi Hili en einnig um fjármálamarkaðinn og tryggingamarkaðinn en Sigurður starfaði lengi vel sem forstjóri TM og um hríð sem aðstoðarforstjóri Kviku.
Spurður hvernig hann meti horfurnar á fasteignamarkaði segir Sigurður að hann telji þær býsna góðar.
„Fasteignaverð hefur sögulega séð hækkað frekar mikið undanfarna áratugi og tölurnar sýna að fasteignir einstaklinga á Íslandi hafa hækkað að meðaltali um 8,3% á ári, og hrunið er inni í þeim tölum. Fasteignaverð undanfarin 5 ár afa hækkað um 9,4% á ári, þannig ávöxtun af þessum eignaflokki hefur verið gífurlega góð," segir Sigurður og bætir við að þó séu blikur á lofti.
„Það hefur hægt á sölu fasteigna undanfarið en það er afleiðing af vaxtaumhverfinu og þeir hafa verið mjög háir, Seðlabankinn er byrjaður í vaxtalækkunarferli og ég tel að þegar vextirnir færast niður muni koma líf á markaðinn aftur. Ég tel að horfurnar séu býsna góðar," segir Sigurður.