Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir og Súrefni ehf. hafa undirritað samstarfssamning sem mun efla fyrirtæki og stofnanir í að þróa, fylgjast með og votta sjálfbær verkefni.
Fram kemur í tilkynningu frá Klöppum að með samningnum muni viðskiptavinir Klappa fá greiðari aðgang að vottunarferlum fyrir verkefnum sem dragi úr umhverfisáhrifum og styðji þannig við hringrásarhagkerfið.
Hugbúnaðarlausnir Klappa gera fyrirtækjum kleift að uppfylla kröfur um sjálfbærnisupplýsingar með einföldum og skilvirkum hætti. Súrefni vinnur með fyrirtækjum og sveitarfélögum að þróun og vottun sjálfbærra verkefna sem skapa kolefniseiningar eða aðrar vottanir fyrir mælanlegar umhverfisframfarir.
„Með samstarfinu við Súrefni geta viðskiptavinir okkar fengið aðgang að vottaðri aðferðafræði og verkefnaþróun sem styður við kolefnishlutleysi og umhverfisábyrgð. Við trúum því að þessi nálgun styrki íslenskt atvinnulíf og auki trúverðugleika sjálfbærnivegferðar fyrirtækja og sveitarfélaga,“ segir Íris Karlsdóttir, framkvæmdastjóri samstarfs hjá Klöppum, í tilkynningunni.
Aríel Jóhann Árnason stofnandi segir að sjálfbær verkefni þurfi skýra aðferðafræði, gegnsæi og vottun til að skila raunverulegum áhrifum. „Við hjá Súrefni erum stolt af því að vinna með Klöppum til að styðja fyrirtæki í að þróa og sannreyna áhrif sjálfbærniverkefna. Hugbúnaður Klappa veitir notendum rauntíma innsýn í umhverfisáhrif sín og við hjálpum þeim að taka næstu skref í átt að ábyrgari og mælanlegri sjálfbærnivinnu.“