Rafrettukóngur í Sýn

Höfuðstöðvar Sýnar.
Höfuðstöðvar Sýnar. mbl.is/Hari

Fitjaborg ehf. keypti nýlega 1,5 milljónir hluta í fjölmiðla- og fjarskiptafélaginu Sýn. Hluturinn er metinn á um 36 milljónir króna að núverandi markaðsvirði, en eftir viðskiptin varð félagið einn af 20 stærstu hluthöfum Sýnar.

Athygli vekur að Fitjaborg er í eigu Snorra Guðmundssonar og Auðar Ránar Kristjánsdóttur, sem oftast eru kennd við rafrettuverslunina Póló. Þau seldu hlut sinn í Póló í byrjun síðasta árs.

Snorri og Sverrir Þór Gunnarsson, sem kenndur hefur verið við rafrettuverslunina Drekann, voru dæmdir í byrjun mánaðarins til að greiða hvor um sig 1,1 milljarð króna í sekt í svokallaða stóra sígarettusmyglmálinu.

Þá hlutu þeir báðir einnig tveggja ára skilorðsbundin dóm fyrir sinn þátt í málinu, eins og fram kom í fréttum Morgunblaðsins.

Snorri og Sverrir voru ákærðir fyrir að hafa í níu sendingum smyglað sígarettum og vindlingum, með því að tilgreina tóbakið í tollaskýrslum sem prótein eða pappír. Undanskot þeirra var talið nema 740 milljónum króna.

Í gegnum félagið Áfengi og tóbak ehf. þóttu þeir Snorri og Sverrir hafa svikist um greiðslu tóbaksgjalda og var þeim gert að greiða sekt upp á 1,1 milljarð hvor um sig innan fjögurra vikna.

Dómurinn samþykkti að kröfur saksóknara um upptöku eigna og var í tilfelli Snorra um að ræða 50% eignarhluta hans í sumarhúsi, atvinnuhúsnæði í Stykkishólmi og stóru einbýlishúsi í Garðabæ.

Einnig voru gerðir upptækir fjármunir Snorra fyrir 133,6 milljónir króna, þar af 12 milljónir sem lagðar voru að veði fyrir sjö úrum sem voru haldlögð á heimili hans.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK