Stjórn Arion banka ákvað á fundi sínum í dag að lýsa yfir áhuga á að hefja viðræður við stjórn Íslandsbanka um samruna félaganna. Bréf þess efnis hefur verið sent til stjórnarformanns og bankastjóra Íslandsbanka.
Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar, að Arion banki sjái mikil tækifæri í samruna bankanna fyrir viðskiptavini, hluthafa og íslenskt hagkerfi.
„Það er staðreynd að þrátt fyrir fjölmargar hagræðingaraðgerðir íslenskra banka á undanförnum árum þá er kostnaður fjármálakerfisins enn hlutfallslega hár hér á landi í alþjóðlegum samanburði. Það er bæði vegna smæðar íslenska hagkerfisins og þeirrar staðreyndar að þrír stærstu bankar landsins eru allir flokkaðir sem kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki samkvæmt evrópskri löggjöf. Þeir þurfa því að uppfylla flókið og umfangsmikið regluverk Evrópusambandsins, sem er samið með miklu stærri fjármálafyrirtæki í huga, auk séríslenskra reglna.
Við sjáum því einstakt tækifæri í því að sameina Arion banka og Íslandsbanka. Þannig verður til skilvirkari og öflugri banki sem er betur í stakk búinn að mæta þörfum viðskiptavina, fjárfesta í auknum mæli í þróun og nýsköpun og styðja við vöxt íslensks efnahagslífs.
Hægt verður að ná fram umtalsverðri samlegð með samruna bankanna og draga þar með úr kostnaði í íslensku fjármálakerfi neytendum og hluthöfum bankanna til góða,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að Arion banki sé reiðubúinn að vinna náið með Samkeppniseftirlitinu til að tryggja að fimm milljarðar króna að lágmarki, af þeim árlega sparnaði sem myndi nást fram við samruna bankanna, skili sér til neytenda.
Bankinn segir að yfir 10 ára tímabil næmi beinn sparnaður íslenskra heimila því 50 milljörðum króna fyrir utan annan ávinning og sparnað sem af samrunanum myndi hljótast.
„Að auki er Arion banki reiðubúinn að bjóða hluthöfum Íslandsbanka, þar með talið íslenska ríkinu sem á 42,5% í bankanum, 5% yfirverð miðað við meðaltal dagslokagengis síðustu 30 daga við ákvörðun skiptigengis félaganna í samrunanum. Hlutur ríkisins í sameinuðu félagi yrði yfir 20%.
Í gegnum ríkið og lífeyrissjóði ætti almenningur á Íslandi, með óbeinum hætti, meirihluta í sameinuðum banka.
Arion telur að samruni bankanna myndi uppfylla öll þrjú skilyrði leiðbeininga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um lárétta samruna; ávinningur neytenda er verulegur, hann er mælanlegur og næst ekki með öðrum leiðum,“ segir enn fremur.