500 milljón sogrör á hverjum einasta degi

Pappír víkur fyrir plasti á ný.
Pappír víkur fyrir plasti á ný. Aric Baradat/AFP

Samkvæmt frétt CNN nota Bandaríkjamenn um 500 milljón sogrör á dag. Stærsti einstaki kaupandi er ríkið eða opinberar stofnanir þar í landi.

Forseti Bandaríkjanna Donald Trump hefur nú afnumið bann sem var í gildi gegn notkun á sogrörum úr plasti. Trump er sérstaklega illa við sogrör úr pappa sem hafa verið notuð eftir að bannið við plastinu var sett á. Nú er ákveðið að sogrörin úr pappa verði ekki lengur notuð á vegum opinberra stofnana.

Bent hefur verið á að líklega sé það ekki einungis andúð Trumps á pappanum sem ráði för heldur kosti slík sogrör um 12 bandarísk sent á meðan þau úr plasti kosti undir 2 sentum. 

Greinin birtist í Morgunblaðinu í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK