Sælgætisfyrirtækið Góa mun taka yfir framleiðslu á Omnom-súkkulaðinu.
Góa hefur keypt allan tækjabúnað Omnom og mun í bráð hefja framleiðslu á Omnom-súkkulaði.
„Við erum mjög ánægðir með þessa niðurstöðu. Með þessu náðum við að halda framleiðslunni áfram á Íslandi og það frábæra fólk sem hefur unnið í framleiðslunni með okkur mun geta gert það áfram. Tækifærin verða stærri og við lítum björtum augum til framtíðarinnar,“ er haft eftir Óskari Þórðarsyni, einum stofnenda Omnom, í tilkynningu.
Hafa allir starfsmenn í framleiðslu Omnom fengið boð um starf hjá Góu við framleiðsluna, frá og með 1. mars.
„Fyrir okkur er þetta mjög spennandi og býður upp á skemmtilega möguleika. Við höfum horft til þess sem Omnom hefur verið að gera í talsverðan tíma og erum ánægð með að getað stuðlað að því að unnt sé að halda því ævintýri áfram,“ er haft eftir Helga Vilhjálmssyni, betur þekktum sem Helga í Góu, stofnanda Góu.
Omnom var stofnað á Íslandi árið 2013 og er í dag þekkt fyrir súkkulaði sem framleitt er frá kakóbaun til vöru.
Góa hefur, frá stofnun fyrirtækisins árið 1968, verið rekið af Helga Vilhjálmssyni og fjölskyldu hans.
Fyrsta vara Góu var Góa karamellur, og urðu síðar til vörur eins og Hraun, Æði, Florída, Góu rúsínur og alls konar kúlur.
Síðar keypti Góa fyrirtæki eins og Linda og Apollo og er í dag einn stærsti sælgætisframleiðandi Íslands og hefur alla sína framleiðslu á Íslandi.