Kjarasamningar við kennara gætu haft áhrif

Hagstofan birti verðbólgumælingu febrúar í gær.
Hagstofan birti verðbólgumælingu febrúar í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýgerðir kjarasamningar hins opinbera við kennara gætu haft nokkur áhrif á verðbólguþróun þegar fram í sækir, að því er fram kemur í greiningu Íslandsbanka sem birt var í gær í tilefni verðbólgumælingar Hagstofunnar.

„Fyrsta kastið verða þó áhrifin væntanlega minniháttar og snúast fyrst og fremst um heldur meiri neyslugetu hjá þeim hluta launafólks og trúlega minna aðhald opinberra fjármála. Með tímanum gæti þó launaskrið á vinnumarkaði almennt aukist fyrir vikið og síðast en ekki síst hefur óvissa um hvað tekur við í lok samningstímabils núverandi samninga vaxið að okkar mati,“ segir í greiningu Íslandsbanka.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,91% í febrúar. Verðbólga á ársgrundvelli lækkaði því úr 4,6% í 4,2%. Verðbólga án húsnæðis hjaðnaði úr 3,0% í 2,7%.

Spár greiningaraðila voru á bilinu 0,61% til 1,1% hækkun vísitölu.

Verðhækkanir húsgagna, heimilisbúnaðar o.fl. vógu þyngst til hækkunar í mánuðinum. Hækkunina skýra útsölulok en vetrarútsölur janúarmánaðar ganga alla jafna til baka að hluta eða öllu leyti í febrúar.

Greiningaraðilar eiga von á því að áfram hægi á verðbólgu næstu mánuði og að hún fari inn fyrir efri vikmörk (4%) verðbólgumarkmiðs Seðlabankans strax í næsta mánuði. Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólgan verði komin niður í 3,4% í maí. Greiningardeild Landsbankans spáir því að ársverðbólgan verði komin niður í 3,8% í maí. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK