Hagnaður sjóða í stýringu Íslandssjóða var 15,5 milljarðar samanborið við 7,1 milljarð árið 2023 og ríflega tvöfaldaðist á milli ára.
Hagnaður félagsins eftir skatta var 433 milljónir króna samanborið við 514 milljónir króna árið 2023.
Rekstrartekjur námu 2.090 milljónum króna samanborið við 2.107 milljónir króna árið áður og lækkuðu um 0,8%. Rekstrargjöld námu 1.542 milljónum króna samanborið við 1.465 milljónum króna árið 2023 og hækkuðu um 5,3%.
Eigið fé í árslok 2024 var 1.911 milljónir króna og eiginfjárhlutfall var 39,7% en hlutfallið má lægst vera 8%.
Rekstur Íslandssjóða hf. var stöðugur á árinu og námu þóknanatekjur 1.877 milljónum króna og hagnaður af rekstri félagsins var 433 milljónir króna. Alls voru eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum 364 milljarðar króna í árslok.
Íslandssjóðir eru með um 28% markaðshlutdeild á sjóðamarkaði fyrir almenna fjárfesta en um tólf þúsund viðskiptavinir ávaxta sparifé sitt í þeim 23 sjóðum sem félagið starfrækir.
Haft er eftir Kjartani Smára Höskuldssyni framkvæmdastjóra Íslandssjóða í tilkynningu að þrátt fyrir að árið 2024 hafi verið krefjandi framan af rættist verulega úr því á seinni hluta ársins.
„Árið í heild sinni var því farsælt fyrir sparifjáreigendur og allir sjóðir okkar skiluðu jákvæðri raunávöxtun á árinu. Verðbólgan virðist loks á undanhaldi og vaxtalækkunarferlið framundan felur í sér ýmis tækifæri. Óvissuþættir hér heima og á alþjóðavísu munu þó eflaust hafa áhrif á eignaverð þegar horft er fram á veginn og er auðsýnt að mínu mati að mikilvægi faglegrar eignastýringar og góðrar eignadreifingar hefur sjaldan verið meiri,“ er haft eftir Kjartani.