NIB veitir Heimum fjármögnun

Ljósmynd/Aðsend

Fasteignafélagið Heimar hafa undirritað lánasamning við Norræna fjárfestingarbankann. Lánið er til 12 ára að fjárhæð 4,5 milljarða króna og er verðtryggt.

Lánið er veitt til fjármögnunar á þremur sjálfbærum og mikilvægum innviðaverkefnum Heima: heilsukjarnanum Sunnuhlíð á Akureyri, stækkun á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík og að reisa Silfursmára 12, sem er ný umhverfisvottuð skrifstofubygging í Kópavogi.

Sunnuhlíð 12 – endurbætur

Undanfarin ár hafa Heimar verið að umbreyta fyrrum verslunarmiðstöð í nútímalega 4.830 m² heilbrigðis- og læknamiðstöð, með 820 m² viðbyggingu. Húsnæðið hýsir nú bæði opinbera og einkarekna heilbrigðisþjónustu og er eina sérhæfða heilsugæslustöðin á svæðinu, sem dregur m.a. úr þörf sjúklinga fyrir að ferðast til Reykjavíkur. Húsið var tekið í fulla notkun í júní 2024 og hefur starfsemin í húsinu orðið lykilþáttur í heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi.

Sóltún 2 – Stækkun hjúkrunarheimilis

Lánið mun einnig fjármagna stækkun hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík en stærð þess verður aukin úr 6.870 m² í 10.360 m² og munu 67 ný hjúkrunarrými bætast við þau 92 sem fyrir eru. Framkvæmdirnar munu hafa í för með sér endurnýjun á hjúkrunarheimilinu og kemur til með að mæta vaxandi eftirspurn eftir hjúkrunarþjónustu fyrir eldri borgara. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á árinu 2025 og er áætlað að þeim ljúki seint á árinu 2027.

Silfursmári 12 – skrifstofuhúsnæði

Þá mun lánið fjármagna framkvæmdir Heima við byggingu skrifstofuhúsnæðis að Silfursmára 12, Kópavogi, í nágrenni við Smáralind. Um er að ræða nýtt og glæsilegt skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými á besta stað í Smáranum í miðju höfuðborgarsvæðisins. Húsnæðið kemur til með að bjóða upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki sem vilja nýta sér sterka staðsetningu, frábæra aðstöðu og sveigjanlegt skipulag. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki haustið 2025.

Haft er eftir André Küüsvek, forstjóra og framkvæmdastjóra NIB, að hann sé afar ánægður með að gefa út fyrsta ISK skuldabréf NIB í tvo áratugi og þakkar fjárfestum fyrir sterkan áhuga.

Með því að styðja þessi fasteignaverkefni erum við að skapa nauðsynlega innviði sem bæta heilbrigðisþjónustu, auka aðstöðu fyrir eldri borgara og efla efnahagslega starfsemi á Íslandi,“ er haft eftir André í tilkynningu.

Haft er eftir Halldóri Benjamín Þorbergssyni, forstjóra Heima, að hann sé afar ánægður með að skýr stefna Heima og framkvæmd hennar á undanförnum árum fái viðurkenningu frá einni fremstu fjármálastofnun Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.

„Með vaxandi áhuga erlendra fjárfesta er þessi áfangi mikilvægur til að auka fjölbreytni í fjármögnun okkar og styðja áframhaldandi arðbæran vöxt kjarnastarfsemi okkar,“ er haft eftir Halldóri í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK