Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti nýlega A+ lánshæfiseinkunn Íslands. Eru horfur fyrir einkunnina stöðugar, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
Lánshæfiseinkunnin endurspeglar mjög háa landsframleiðslu á mann og sterkan hagvöxt Íslands – sem hefur verið hærri en hjá flestum ríkjum sem S&P meta í Vestur-Evrópu – sem og sterka stofnanaumgjörð og trausta efnahags- og ríkisfjármálastefnu.
Þættir sem halda aftur af einkunninni eru sveiflukennt eðli íslenska hagkerfisins – sem er útsett fyrir náttúruvá, þar á meðal eldvirkni – sem og neikvæð ytri þróun sem hagkerfið hefur ekki stjórn á – eins og áhætta í alþjóðamálum, deilur um alþjóðaviðskipti og sveiflukennd viðskiptakjör.
Þá takmarkar smæð íslensks efnahagslífs skilvirkni hagstjórnar og peningastefnu, vegna áhrifa utanaðkomandi þátta sem Ísland hefur ekki stjórn á.
Stöðugar horfur endurspegla mat S&P, að í kjölfar tímabundins samdráttar á árinu 2024 muni hagvöxtur á Íslandi taka við sér á næstu árum – á meðan halli á ríkisfjármálum og í viðskiptum við útlönd haldast í skefjum.
Endurspegla horfurnar einnig þá forsendu S&P að hvorki eldvirkni né spenna í alþjóðlegum viðskiptum muni hafa viðvarandi neikvæð áhrif á efnahagsstarfsemi, ríkisfjármál eða greiðslujöfnuð.
Álútflutningur er að mestu leyti til evrópskra markaða – aðallega Hollands og Þýskalands – sem dregur úr beinni áhættu vegna tolla.
Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs gæti hækkað ef opinber fjármál landsins styrkjast meira en S&P hefur gert ráð fyrir.
Einkunnin gæti einnig hækkað ef S&P myndu telja aukna fjölbreytni gera hagkerfið viðnámsþolnara fyrir ytri áföllum, á sama tíma og núverandi spenna í alþjóðaviðskiptum minnkar án viðvarandi neikvæðra efnahagslegra áhrifa.
Lánshæfiseinkunnin gæti þó einnig lækkað, ef afkoma ríkisfjármála eða greiðslujöfnuður reynist lakari en í grunnspá S&P.
Það getur gerst til að mynda ef viðvarandi truflandi eldvirkni hamlar ferðaþjónustu landsins og vexti, eða ef Ísland yrði fyrir meiri áhrifum af spennu í alþjóðaviðskiptum eða yrði að auka verulega útgjöld til varnarmála.