Í uppgjöri Iceland Seafood kom fram að félagið hefði á síðasta ári verið að selja eldri birgðir sem skiluðu neikvæðri afkomu auk þess sem vaxtakostnaður hækkaði verulega á milli áranna 2023 og 2024 eða sem nam 500 milljónum króna. „Þessi hækkun vaxtakostnaðar átti sér stað samhliða hækkun vaxta í helstu viðskiptalöndum okkar og vaxtahækkun á útgefinn skuldabréfaflokk í október 2023 en þegar líða tók á árið 2024 sáum við vexti fara að lækka, sem er jákvætt fyrir félagið.“
Öll rekstrarfélög undir hatti Iceland Seafood skiluðu hagnaði á síðasta ári. Ægir Páll segir að þorskurinn sé mikilvægasta tekjustoð félagsins en laxinn og rækja frá Suður-Ameríku sé þó að sækja í sig veðrið.
„Laxinn er um 17% af tekjum og hefur verið að aukast á undanförnum árum. Við horfum á uppgang í laxeldi á Íslandi sem tækifæri sem gæti skilað sér í jákvæðri þróun í okkar rekstri,“ segir Ægir Páll.
Hann nefndi á uppgjörsfundi félagsins að stóra málið á þessu ári væri endurfjármögnun félagsins. Félagið fjármagnar sig að hluta til með víxlum og er með stórt skuldabréf á gjalddaga í júní.
„Ég vonast til að við getum endurfjármagnað okkur á kjörum sem eru betri en þau voru sem við bjuggum við á síðasta ári. Við fjármögnum okkur að stærstum hluta í evrum þannig að vaxtaþróun í Evrópu skiptir okkur miklu máli,“ segir Ægir Páll og bætir við að félagið sé þá að horfa á langtímafjármögnun.
Í tilkynningu kemur fram að hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi á árinu 2025 muni samkvæmt afkomuspá nema um 1,1-1,4 milljörðum króna.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi háu þorskverði á árinu og að verð á laxi verði í hærri kantinum fyrri hluta ársins en lækki á síðari hluta þess. Spurður um horfur og hvaða áskoranir séu fram undan í rekstri félagsins segir Ægir Páll að eftirspurnin um þessar mundir sé mjög sterk en á móti kemur að aðfangakeðjan og áskoranir henni tengdar séu stórt verkefni fyrir félagið.
„Það er ekki einungis áskorun fyrir okkur heldur sjávarútveginn á Íslandi, svona mikil minnkun í úthlutun þorskkvóta í Barentshafi hefur áhrif á markaðinn,“ segir Ægir að lokum.
Greinin birtist í heild sinni í ViðskiptaMogganum.