Steypiregn á mörkuðum eftir að Trump útilokaði ekki lægð

Spákaupmaður skoðar tölurnar eftir að bandaríska kauphöllinn opnaði í morgun. …
Spákaupmaður skoðar tölurnar eftir að bandaríska kauphöllinn opnaði í morgun. Hann virðist ekki sáttur. AFP

Hlutabréfamarkaðir um víða veröld hafa fallið eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ekki útiloka að þjóðin horfði fram á samdrátt í kjölfar aðgerða forsetans í efnahagsmálum.

Trump neitaði að útiloka þann möguleika í viðtali á Fox News í gær að efnahagsaðgerðir, og einkum tollastríð, Trump-stjórnarinnar gætu valdið efnahagslegri lægð í landinu.

„Ég hata að spá um slíkt,“ sagði hann spurður um mögulegan samdrátt í ár. Enn fremur sagðist hann íhuga að leggja enn þyngri tolla á Mexíkó og Kanada.

Viðtalið sjálft átti sér stað á fimmtudag en var sýnt í gærmorgun. 

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AFP

Um leið og markaðir opnuðu vestanhafs mátti sjá viðbrögðin við ummælum Trumps taka á sig mynd, þar sem S&P500-vísitalan hefur fallið um 2,28%, að því er New York Times greinir frá. Dow Jones-vísitalan hefur lækkað um 1,31% og Nasdaq 100 fallið um 3,4%.

Er þetta versti dagurinn á Wall Street það sem af er ári. 

Högg fyrir Teslu

Þá féllu einnig hlutabréf hjá hinni „stórfenglegu sjöu“, þ.e. tæknirisunum Apple, Microsoft, Alphabet (Google), Amazon.com, Nvidia, Meta og Tesla, sem allir lækkuðu um a.m.k. 2%.

Teslubréfin féllu um rúmlega 11% en fyrirtækið er í eigu Elons Musks, ráðgjafa forsetans.

Kína hefur nú svarað í sömu mynt við tollaaðgerðum Trumps, þar sem stjórnvöld í Peking hafa lagt hefndartolla á bandarískar landbúnaðarvörur. Tollarnir tóku gildi í morgun. Rafmyntin Bitcoin hefur einnig fallið um 1,66%.

Hlutabréf í Delta Air Lines hafa einnig hrapað um tæp 7%, sem og hlutabréf hjá United Airlines.

Danski Ozempic-risinn fellur um 8%

Hrun hlutabréfa í Bandaríkjunum hefur endurómað í Evrópu þar sem þýska DAX-vísitalan hefur lækkað um 1,75% frá því að markaðir opnuðu. EURO STOXX 50-vísitalan hefur jafnframt lækkað um 1,57%.

Hrun hlutabréfa í Bandaríkjunum hefur bergmálað til Evrópu þar sem þýska DAX-vísitalan hefur lækkað um 1,75% frá því að markaðir opnuðu.

EURO STOXX 50-vísitalan hefur jafnframt lækkað um 1,57%. Danska C25-vísitalan hefur auk þess lækkað um 1,64%.

Auk þess hafa hlutabréf lyfjaris­ans Novo Nordisk, sem fram­leiðir syk­ur­sýk­is- og offitu­lyf­in Ozempic og Wegovy, lækkað um 8% það sem af er degi, að sögn TV2.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK