Samkvæmt tilkynningu hefur Plaio ráðið til sín fjóra starfsmenn í hóp vöru- og hugbúnaðarþróunar og innleiðingar og ráðgjafar.
Fram kemur að framtíðarsýn Plaio sé að vera leiðandi fyrirtæki á sviði gervigreindartækni í aðfangakeðjum lyfja- og lífvísindafyrirtækja.
Plaio var stofnað af forstjóra félagsins, Jóhanni Guðbjargarsyni.
Starfsmennirnir fjórir sem koma nú til félagsins eru:
Lou Xun er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Zhejiang-háskólanum. Lou mun bera ábyrgð á hönnun og þróun á skalanlegum tækniinnviðum og viðhalda skýjalausnum fyrirtækisins.
Úlfur Örn Björnsson er með B.Sc. gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Úlfur mun bætast í hóp bakendaforritara til að þróa áfram veflausnir og bakendakerfi Plaio.
Dana Sól Tryggvadóttir er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði ásamt B.Sc. gráðu tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Dana kemur inn sem tæknilegur áðgjafi innan innleiðingarteymis Plaio.
Joice Ozaki er með MFA gráðu frá California Institute of the Arts og BFA gráðu frá Virginia Commonwealth University. Joice tekur við sem vörustjóri með sérhæfingu í stafrænni stefnumótun, UX/UI hönnun og vöruþróun.
Í tilkynningu er haft eftir Manuelu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra hugbúnaðarþróunar:
„Þessir sérfræðingar fylla mikilvæg hlutverk innan Plaio og marka lykilskref í að styrkja okkur enn frekar. Þau koma með mikla reynslu og þekkingu sem mun styrkja okkur og gera okkur enn betur í stakk búin að þróa lausnina og skapa virði fyrir okkar viðskiptavini.“