Samkvæmt tilkynningu hefur indó sparisjóður ákveðið að lækka vexti á inn- og útlánum sínum.
Fram kemur að vextir á debetreikningum, sparibaukum, yfirdrætti og Færslusplitti lækki um 0,25 prósentustig.
Vaxtalækkun indó endurspeglar vaxtalækkun Seðlabankans sem tilkynnt var í dag.