Skilur afstöðu peninganefndar til vaxtalækkana

Daði Már Kristóferrsson fjármálaráðherra segir ákveðin óveðursský vera í alþjóðaviðskiptum, …
Daði Már Kristóferrsson fjármálaráðherra segir ákveðin óveðursský vera í alþjóðaviðskiptum, sem þurfi að sjá hvernig muni þróast. mbl.is/Karítas

Daði Már Kristó­fers­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, segist skilja að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands taki varfær skref, en ákveðið var að lækka stýri­vexti um 0,25 pró­sent­ur. Verða meg­in­vext­ir bank­ans því 7,75%.

Spurður hvernig hann metur stöðuna og framhaldið segir Daði:

„Það er auðvitað mjög ánægjulegt að vextir séu áfram að lækka. Auðvitað vonar fjármálaráðherra alltaf að það geti gerst hraðar, en ég skil mjög vel afstöðu peningastefnunefndar – það eru svona ákveðnar vísbendingar um að verðbólga muni verða vandamál eitthvað áfram og þess vegna skil ég að þau taki varfær skref.

Líka vegna þess að það eru ákveðin svona óveðursský getum við sagt í alþjóðaviðskiptum, sem við þurfum aðeins að sjá hvernig muni þróast. Fyrst og fremst er ég mjög ánægður með að við séum áfram á þessari vegferð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK