Aðstoðarmaður Bjarna til Símans

Hersir Aron Ólafsson sér um upplýsingamál Símans ásamt því að …
Hersir Aron Ólafsson sér um upplýsingamál Símans ásamt því að vera aðstoðarmaður forstjóra. Steindór Emil Sigurðsson verið ráðinn sem forstöðumaður viðskiptaþróunar og vörustýringar á fyrirtækjamarkaði Ljósmyndir/Síminn

Hersir Aron Ólafsson, sem var aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn sem forstöðumaður samskipta og fjárfestatengsla hjá Símanum. 

Þá hefur Steindór Emil Sigurðsson verið ráðinn sem forstöðumaður viðskiptaþróunar og vörustýringar á fyrirtækjamarkaði og mun þar leiða uppbyggingu fyrirtækjalausna Símans. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Símanum.

Hersir mun auk þess að gegna starfi forstöðumanns vera aðstoðarmaður forstjóra og mun vinna með framkvæmdastjórn að innleiðingu nýrrar stefnu félagsins ásamt áframhaldandi þróun og vexti.

Hersir er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Undanfarin ár hefur hann starfað sem aðstoðarmaður forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðherra. Áður starfaði Hersir meðal annars sem lögfræðingur Ölmu íbúðafélags, hjá LOGOS lögmannsþjónustu og sem fréttamaður og þáttastjórnandi á Stöð 2 og mbl.is.

Deildin sem Steindór mun stýra er ný innan félagsins, en það er í samræmi við áherslu á að fjölga og bæta enn frekar framboð stafrænna lausna til fyrirtækja.

Steindór er með M.Sc. gráðu í verkfræði frá DTU í Danmörku og hefur 25 ára reynslu af sérfræði- og stjórnunarstörfum innan nýsköpunar og vöruþróunar. Steindór kemur frá Controlant þar sem hann var lengst af í hlutverki forstöðumanns þróunar, en áður starfaði hann hjá Marorku, Símanum, Industria og Nokia.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK