Matthías Stephensen hefur verið ráðinn fjármálastjóri hjá alþjóðlega innviðafyrirtækinu Set ehf.
Matthías hefur yfir tíu ára reynslu af fjármálastjórnun og rekstri, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum mörkuðum.
Í tilkynningu frá Set segir að hann muni leggja sérstaka áherslu á að styrkja fjármáladeild Set ehf. með samræmingu fjármála samstæðunnar á Íslandi, í nánu samstarfi við erlendu starfsstöðvar Set sem eru í Þýskalandi og Danmörku.
Matthías starfaði síðast sem fjármálastjóri Héðins og tengdra félaga. Þar áður var hann forstöðumaður rekstrar og sölu á viðskiptabankasviði hjá Arion banka.
Hann er með M.Sc. gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á reikningshald og fjármál fyrirtækja.
„Við erum mjög ánægð með að fá Matthías til liðs við framkvæmdastjórn Set ehf. Hann kemur með víðtæka reynslu úr fjármálageiranum og fjölbreytta þekkingu sem mun styrkja fjármálateymi okkar til muna. Við bjóðum hann velkominn í teymið og hlökkum til að njóta krafta hans í sókninni sem er framundan hjá Set ehf,“ er haft eftir Guðbjörgu Sæunni Friðriksdóttur, forstjóra fyrirtækisins.