Birkir Einar Björnsson, Bóas Bóasson og Kristín Gunnarsdóttir hafa tekið við nýjum stöðum sem rekstrarstjórar hjá Samkaupum.
Samkvæmt tilkynningu hefur Samkaup ráðið til sín þrjá nýja rekstrarstjóra.
Bóas Bóasson hefur tekið við stöðu rekstrarstjóra Nettó. Bóas kemur til Samkaupa frá Pizzunni ehf. þar sem hann sinnti stöðu framkvæmdastjóra.
Birkir Einar Björnsson, sem hefur starfað hjá Samkaupum í hátt í tvo áratugi bæði sem aðstoðarverslunarstjóri og verslunarstjóri og síðast gæða- og þjónustustjóri Nettó, hefur tekið við stöðu rekstrarstjóra Kjörbúðarinnar.
Kristín Gunnarsdóttir sem hefur starfað um árabil hjá Samkaupum, fyrst sem mannauðsstjóri Kjör- og Krambúða og síðar sem rekstrarstjóri verslananna heldur nú áfram sem rekstrarstjóri Krambúðanna og Iceland verslana.
„Við hjá Samkaupum leggjum mikla áherslu á að fólkið okkar blómstri í starfi og það er alltaf gaman að líta yfir feril reynslubolta eins og Kristínar og Birkis sem hafa verið hjá okkur lengi, vaxið og dafnað í starfi. Nú svo er alltaf fagnaðarefni að fá flott fólk eins og Bóas til liðs við okkur. Fram undan eru spennandi tímar hjá Samkaupum. Við erum með þessar þrjár öflugu verslanakeðjur sem hafa allar sín sérsvið og veita viðskiptavinum okkar ólíka þjónustu. Þessar skipulagsbreytingar eru liður í að styrkja hvert vörumerki fyrir sig enn frekar til að veita viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu og vöruúrval um allt land,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og þjónustu hjá Samkaupum.